User Manual - Page 412

For AIRBLADE .

Loading ...
Loading ...
Loading ...
78
UPPLÝSINGAR UM FÖRGUN
Vörur frá Dyson eru gerðar úr hágæða endurvinnanlegum efnum. Endurvinnið eins og
kostur er.
ÁBYRGÐIN
ÁKVÆÐI OG SKILMÁLAR 5 ÁRA ÁBYRGÐAR DYSON.
Ef tækið hefur verið skráð á netinu tekur ábyrgðin gildi á kaupdegi. Geymið
innkaupakvittunina. Ef innkaupakvittun er ekki fyrir hendi tekur ábyrgðin gildi 90 dögum eftir
framleiðsludag skv. skrám Dyson.
Ef tækið er selt innan Evrópusambandsins heldur ábyrgðin aðeins gildi sínu (i) ef tækið er
sett upp og notað í því landi þar sem það var selt eða (ii) ef tækið er sett upp og notað í
Austurríki, Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Írlandi, Ítalíu, Hollandi, Spáni eða Bretlandi, og
sama gerð tækisins er seld með sömu málspennu í viðkomandi landi. Ef þetta tæki er selt utan
Evrópusambandsins verður það að vera sett upp og notað í því landi þar sem það var selt til að
ábyrgðin haldi gildi sínu.
UMFANG ÁBYRGÐAR
5 ÁRA ÁBYRGÐ
Allir varahlutir Dyson handþurrkunnar eru í ábyrgð gegn upprunalegum göllum, efni og vinnu,
séu þeir notaðir í samræmi við eigandahandbókina og uppsetningarleiðbeiningarnar í fimm ár
frá upphafsdegi ábyrgðarinnar.
Frekari upplýsingar má fá í þjónustuveri Dyson.
Ef bilun kemur upp í rafkerfi mun Dyson annast viðgerð án kostnaðar vegna vinnu meðan á
ábyrgðartímanum stendur.
Ábyrgð vegna vinnu gildir ekki ef skipta þarf um mótorhylki, síu eða segulliða. Bili þessir íhlutir
mun viðskiptavinurinn fá nýja íhluti sem hann verður sjálfur að sjá um uppsetningu á.
Frekari upplýsingar má fá í þjónustuveri Dyson.
Þegar skipta þarf um síu mun Dyson láta í té síuskiptisett sem viðskiptavinur þarf að setja upp.
Allir hlutir sem er skilað eða skipt út af Dyson verða eign Dyson.
Viðgerð eða skipti á einingunni undir ábyrgð framlengir ekki ábyrgðartímabilið.
Ábyrgðin felur í sér viðbótarréttindi sem hafa ekki áhrif á nein lögvarin réttindi sem þú gætir
átt sem neytandi.
HVAÐ ÁBYRGÐIN NÆR EKKI YFIR
Dyson ábyrgist ekki viðgerðir eða skipti á vöru þar sem bilunin er vegna:
Skemmda vegna óhappa, bilana sem stafa af gáleysi í notkun eða umhirðu, misnotkunar
án ásetnings eða af ásetningi, vanrækslu, skemmdarverka, ógætilegrar notkunar eða
meðhöndlunar tækisins sem ekki er í samræmi við handbók Dyson.
Notkunar varahluta sem ekki eru settir saman eða settir upp í samræmi við fyrirmæli
frá Dyson.
Notkunar varahluta og aukabúnaðar sem eru ekki ósviknir varahlutir frá Dyson.
Rangrar uppsetningar, eða uppsetningar þar sem fyrirmælunum frá Dyson er ekki fylgt
nákvæmlega (nema í þeim tilvikum þegar Dyson sá um uppsetninguna).
Viðgerða eða breytinga sem ekki samræmast leiðbeiningum frá Dyson.
Skemmda af ytri orsökum, t.d. vegna flutninga, veðurs, rafmagnsleysis eða yfirspennu
í rafkerfi.
Eðlilegs slits (t.d. öryggi, o.s.frv.).
Skemmda vegna þrifa sem ekki eru samkvæmt leiðbeiningum í þessari handbók, t.d.
hreinsun með efnum eða vörum sem eru skaðleg fyrir tækið.
Skemmda af völdum vatns sem kemst í tækið vegna hreinsunar eða meðferðar sem er
bönnuð í þessari handbók.
Sérhver skemmd í rafkerfi, vegna flóðs eða á byggingu vörunnar, eða sérhvert rekstrar- eða
tekjutap sem hlýst af bilun tækisins. Ef vafi leikur á um hvað fellur undir ábyrgð skal hafa
samband við Dyson (upplýsingar á baksíðunni).
SAMANTEKT Á UMFANGI ÁBYRGÐAR
Leggja verður fram sönnun á afhendingu/kaupum (bæði upprunalega og síðari) áður
en vinna getur hafist við tækið frá Dyson eða áður en útvegaðir eru varahlutir. Án
þessarar sönnunar þarf að greiða fyrir varahluti og vinnu. Haltu til haga kvittun eða
afhendingarskjali.
Með fyrirvara um ofangreinda fyrirvara mun Dyson eða viðurkenndir umboðsaðilar þess
annast alla vinnu sem tengist ábyrgð þessari.
UM ÞÍNA PERSÓNUVERND
VIÐ SKRÁNINGU Á DYSON-VÖRUNNI
Þú þarft að gefa okkur upp helstu samskiptaupplýsingar við skráningu á vörunni til að v
getum sinnt ábyrgð okkar á henni.
Þegar þú skráir þig býðst þér að velja hvort þú vilt að við sendum þér upplýsingar síðar. Ef
þú velur að fá upplýsingar frá Dyson munum við senda þér upplýsingar um sértilboð og
fréttir sem tengjast nýjustu tækninýjungunum okkar. Við seljum upplýsingarnar þínar aldrei
til þriðja aðila og notum þær upplýsingar sem þú deilir með okkur aðeins í samræmi við
persónuverndarstefnuna sem hægt er að nálgast á vefsíðu okkar privacy.dyson.com.
IS
27.11.2017 12:51 - C92757_WD04_OPMAN_INT_X588-OWNERS-MANUAL-PART 3- TEXT.indd_15_0c2s_15_0c2s
Loading ...
Loading ...
Loading ...