User Manual - Page 151

For AIRBLADE .

Loading ...
Loading ...
Loading ...
151
IS
Skoðun fyrir uppsetningu
Mynd A
Skipulagning fyrir uppsetningu
Dyson Airblade Wash+Dry-krani með
handþurrku er hannaður þannig að mótorinn
er staðsettur fyrir aftan burðarbitavegg,
inni í málmhylki sem fylgir Dyson Airblade
Wash+Dry-krana með handþurrku. Mynd A(i)
Lóðréttu burðarbitana þarf að setja upp
þannig að málmhylkið komist fyrir á milli
þeirra. Smynd A(i).
Tækið er hannað til notkunar á þurrum
stað innanhúss.
Kynnið ykkur tengdar
uppsetningarleiðbeiningar í innlendum
og alþjóðlegum reglugerðum um
aðgengismál. Uppsetningaraðili ber ábyrgð
á því að uppsetning samræmist reglum
og reglugerðum. Þegar tækið er sett upp
þarf að nota mfylgjandi stokk, stokkhlíf
oglmhylki.
Aðferð til að aftengja öll skaut verður að
vera innbyggð í fastar lagnir í samræmi
við gildandi reglugerðir um rafleiðslur á
hverjum stað.
Einangrið aðveitu rafmagns og vatns
áður en hafist er handa við uppsetningu
a viðhaldsvinnu.
Gætið þess að engar aðveituleiðslur (fyrir
gas, vatn eða loft), rafleiðslur, vírar eða
aðrar leiðslur séu staðsettar beint fyrir aftan
uppsetningar-/borunarstaðinn.
Dyson mælir með notkun hlífðarfatnaðar,
augnhlífa og annarra persónuhlífa
við uppsetningu eða viðgerðir eins og
þurfa þykir.
Þessu tæki er ætlað að vera varanlega tengt
við aðalvatnsleiðslu.
Notkun þar sem matlavinnsla fer fram
Í aðsðum þar sem matvælaframleiðsla fer
fram er þörf á sérstakri uppsetningu. Koma
verður mótorhulsunni og slöngunni í heild
sinni fyrir í húsi sem hægt er að þrífa eða hafa
mótorhulsuna hinum megin við vegg,
tryggja nægt fríbil undir henni til þrifa
(ef við á) og tryggja að einingin sé í að a.m.k.
2,5 metra fjarlægð frá óvörðum matvælum
a óvörðum svæðum þar sem unnið er
með matvæli.
Kynnið ykkur leiðarvísi um vaska á
www.dyson.com fyrir uppsetningu.
Til að uppsetning takist vel er nauðsynlegt
að eftirfarandi sé rétt staðsett: Burðarbitar,
veggflötur, vinnuflötur og vaskur, eins og
nt er á mynd A(ii).
Allar mælingar skulu miðast við miðju
kranans niður að gólfi. Ráðlögð fjarlægð
er um það bil 955 mm en raunhæð fer eftir
því hversu hátt uppi vaskurinn á að vera, sjá
sniðmát (2. hluta).
Gætið þess að nægilegt rými sé til staðar
fyrir uppsetningu og viðhald.
Ef setja á upp mörg tæki hlið við hlið á
vegg þarf hugsanlega að skipuleggja
uppsetninguna með hliðsjón af því.
Mynd B
rtækar leiðbeiningar fyrir vask
Tæknimenn Dyson notuðu sérhannaða
prófunaraðferð til að prófa víðkt úrval
vaska í því skyni að meta samhæfi þeirra við
Dyson Airblade Wash+Dry handþurrku með
krana. Leiðbeiningar um ráðlaar gerðir
vaska eru á www.dyson.com.
Vaskar úr postulíni eða burstuðum málmi
henta sérlega vel. Forðist að nota vaska með
mjög fægðu yfirborði, t.d. speglandi krómi.
Sjá lágmarksmál fyrir vask á mynd B.
Mynd C/D/E
Kraninn settur upp
Fjarlægðin frá miðju kranans til efsta hluta
vasksins ætti að vera minnst 100 mm og mest
155 mm. Mynd C.
Fjarlægðin frá miðju kranans til næsta
hliðarveggs ætti að vera minnst 290 mm.
Þegar margir kranar eru settir upp hlið við
hlið ættu að vera minnst 580 mm á milli
miðjuhluta krananna. Þannig fæst nægilegt
pláss til að setja upp mótorhylkið, sem og
gilegt olnbogarými fyrir notendur. Mynd D.
Staðsetjið niðurvísandi vatnsskynjarann á
krananum ekki yfir speglandi yfirborði, t.d.
afrennslisopi. Mynd E.
Mynd F
Sápa og staðsetning sápuskammtara
Til að notkunin verði sem ánægjulegust mælir
Dyson með notkun sápugels.
Innrauða skynjarasvæðið sem virkjar
loftfðið liggur mfram hverri kranakvísl.
Til að forðast virkjun fyrir slysni er mikilvægt
að hafa hliðsjón af því hvaða leið hönd
notandans fer að sápuskammtaranum.
Skammtarinn ætti að vera í minnst 60 mm
fjarlægð frá breiðari hluta kranans, til
að notandinn teygi höndina út með
framhlið kranakvíslarinnar.
Skammtarinn ætti enn fremur að vera minnst
60 mm fyrir ofan kvíslarnar til að forðast að
virkja skynjarana að óþörfu.
Hafið í huga að hugsanlega teygir notandinn
höndina á ská yfir að sápuskammtaranum
og sú leið má því ekki liggja
gegnum skynjarasvæðið.
Mynd G/H
Frárennsli vatns
Þar sem vatn og loft kunna að stast út á
miklum hraða í mikilli nálægð er hætta á að
vatn og sápa geti slest út fyrir vaskinn. Til að
draga úr hættu á slíku er ráðlegt að fylgja
leiðbeiningunum hér á eftir.
Snið botn
Ef botninn er flatur slettist mikið, sem leiðir til
lélegs frárennslis. Til að auka frárennsli ætti
að forðast vaska með flatan botn og huga
sérstaklega að sðinu næst frárennslisopinu,
minnst 60 mm radíus. Mynd G.
Ef horn skábrautarinnar við jaðar
afrennslisopsins er minnst 6° verður
frárennslið fullnægjandi og það dregur úr
slettum (minnst 60 mm radíus). Mynd H.
Mynd I/J/K
gun bakhliðar að framhlið
Einnig þarf að huga að lögun bakhliðar að
framhlið. Bakhliðin ætti að vera eins nálægt
90° og unnt er og radíusinn eins hvass og unnt
er. Mynd I. Sveigðar línur eru líklegri til að
auka hættu á slettum og forðast ætti aflíðandi
lögun frá bakhlið að framhlið. Mynd J/K.
Loading ...
Loading ...
Loading ...