Loading ...
Loading ...
Loading ...
Ábyrgðarskilmálar BSH Home Appliances AB Íslandi
IS
BSH Home Appliances AB, P.O. Box 503, 169 29 Solna, Svíþjóð, Iceland 01/2022
Skilmálarnir hér neðan sem lýsa kröfum og umfangi ábyrgðar okkar takmarka ekki lögbundin réttindi endanlegra viðskiptavina okkar ef
gallar koma fram á tækjum þeirra frá okkur. Neytandi kann eiga frekari rétt til beitingar vanefndarúrræða á grundvelli VI. kafla
Neytendakaupalaga nr. 48/2007. Endanlegir viðskiptavinir geta krafist þessara réttinda ókeypis án þess það dragi úr ábyrgð okkar.
auki veitum við endanlegum viðskiptavinum ábyrgð á tækjum okkar samkvæmt eftirfarandi skilmálum:
1. Í samræmi við skilmálana hér neðan (gr. 2-8) munum við laga galla á tækjum okkar án endurgjalds ef þeir eru sannanlega afleiðing
efnis- og/eða framleiðslugalla og ef okkur er tilkynnt um þá tafarlaust eftir endanlegur viðskiptavinur varð gallans var og innan 24
mánaða frá afhendingu til fyrsta notanda, nema ætla megi tækið hafi verulega lengri endingartíma en almennt gerist um söluhluti og
endanlegur viðskiptavinur er neytandi. Í þeim tilvikum skal neytandi hins vegar tilkynna gallann án ástæðulauss dráttar frá því hann
varð gallans var og innan fimm ára frá afhendingu til neytandans.
Ef gallinn kemur í ljós innan 12 mánaða eftir afhendingu er gert ráð fyrir hann efnis- eða framleiðslugalli (undantekningar, sjá gr.
2).
2. Ábyrgðin tekur ekki til viðkvæmra hluta eins og glers, plasts og ljósapera. Ábyrgðin nær heldur ekki til hluta sem rýrna vegna eðlilegs
slits og/eða noktunar á hlutum. Við veitum tólf mánaða ábyrgð á útskiptanlegum rafhlöðum í „Power for All“ tækjunum þó þær falli
undir hluti sem rýrna vegna eðlilegs slits og/eða notkunar í framangreindum skilningi.
Minniháttar frávik frá upplýsingum um gæði vörunnar sem eru óveruleg hvað varðar virði og möguleika til notkunar á tækinu falla ekki
undir ábyrgð okkar. Tjón eða gallar af völdum efna- og rafefnafræðilegra áhrifa vatns og/eða almennt af völdum óeðlilegra umhver-
fisaðstæðna falla ekki undir ábyrgð okkar heldur tjón sem hlýst af notkun í slæmum skilyrðum eða því tækið kemst á annan hátt í
snertingu við óviðeigandi efni. Ábyrgð okkar nær heldur ekki til galla sem stafa af skemmdum sem urðu við flutning tækisins, rangri
uppsetningu og samsetningu tækisins sem við berum ekki ábyrgð á, rangri notkun, notkun utan heimilis, skorti á viðhaldi eða því
ekki er farið eftir leiðbeiningum um notkun eða uppsetningu.
Ábyrgð okkar fellur niður ef viðgerðir eða inngrip hafa verið gerð af einstaklingum sem hafa ekki fengið vottun frá okkur til þess eða ef
tækin okkar hafa verið búin varahlutum, viðbótar- eða aukahlutum sem eru ekki upprunalegir íhlutir, og ef viðgerð eða inngrip aðila án
viðeigandi heimildar eða ísetning hluta, sem ekki eru upprunalegir íhlutir, hafa leitt til bilunar.
3. Úrbætur skulu fara fram á þann hátt við veljum hvort bætt verður úr gölluðum hlutum tækisins eða afhentir nýir og ógallaðir hlutir án
endurgjalds (úrbætur) Undanskilin eru þau tilvik viðskiptavinur er neytandi en þá hefur neytandi val um hvort hann krefur okkur um
úrbætur á eigin reikning eða krefst nýrrar afhendingar, nema fyrir hindrun sem við ráðum ekki við eða framangreint myndi hafa í för
með sér ósanngjarnan kostnað fyrir okkur. Þeim hluta tækisins sem skipt er út verður eign okkar.
4. Ef úrbætur takast ekki eða við höfnum framkvæma úrbætur munum við afhenda nýtt tæki af sambærilegu virði án endurgjalds úr
staðbundnu vörusafni innan ofangreinds ábyrgðartímabils.
Tækinu sem skipt er út verður eign okkar.
5. Endanlegur viðskiptavinur skal tilkynna galla til þjónustuborðs okkar til þess gera kröfu í ábyrgð okkar. Í því skyni eru eftirfarandi
samskiptavalkostir í boði fyrir endanlegan viðskiptavin: sími, tölvupóstur. Endanlegur viðskiptavinur tækisins getur fundið viðeigandi
tengiliðaupplýsingar í bæklingnum „Tengiliðir þjónustu“. auki skal framvísa ábyrgðarskírteini, innkaupakvittun eða öðru söluskjali
sem sýnir afhendingardag eða minnsta kosti dagsetningu pöntunar.
Tæki sem hægt er flytja, án verulegs óhagræðis (t.d. í fólksbíl), og sem krafist er úrbóta á með vísan til ábyrgðar þessarar, skal af-
henda eða senda til næstu þjónustustöðvar okkar eða til viðurkennds þjónustuaðila okkar. Endanlegur viðskiptavinur getur eingöngu
krafist viðgerða á starfsstöð sinni vegna tækja sem eru í staðbundinni notkun (óhagganleg). Endanlegur viðskiptavinur tækisins verður
veita þjónustutæknimanni okkar eða viðgerðarmanni aðgengi tækinu með því vera til staðar eða á annan hátt tryggja
viðgerð geti farið fram á starfsstöð endanlegs viðskiptavinar.
Ábyrgðin nær aðeins til vinnu og kostnaðar sem tengist beint úrbótum eða nýrri afhendingu á tækinu undir eðlilegum kringumstæðum.
Ef tækið er sett upp eða komið fyrir á þann hátt ekki er hægt framkvæma viðgerðir eða skipti án umfangsmikillar viðbótarvinnu,
svo sem taka niður ljósabúnað, lista, innréttingarlausnir o.s.frv., áskiljum við okkur rétt til krefja viðskiptavininn um þóknun fyrir
viðbótarvinnuna.
Ef tækið er landfræðilega staðsett þar sem ekki næst til þess án sérstakra flutningslausna, svo sem báts, snjósleða, þyrlu eða annarra
sambærilegra lausna, gæti viðskiptavinurinn verið beðinn um taka þátt í slíkri lausn. Slík þátttaka getur t.d. verið fólgin í því skipu-
leggja og/eða greiða fyrir slíkar flutningslausnir og önnur gjöld, hugsanlega á eigin kostnað, eða með því flytja tækið á umsaminn
stað.
6. Úrbætur eða afhending á ábyrgðartímabilinu hvorki framlengir endurnýjar ábyrgðartímabilið. Ábyrgðartímabil varahluta sem settir
eru í tækið lýkur með ábyrgðartímabili tækisins sjálfs.
7. Hinn endanlegi viðskiptavinur getur ekki gert frekari kröfur eða kröfur aðrar en þær sem tilgreindar eru hér ofan samkvæmt þessari
ábyrgð.
8. Þessir ábyrgðarskilmálar gilda um tæki sem keypt eru og notuð á Íslandi. Ef tæki er sent til og notað í öðru ESB/EFTA landi („notkunar-
land") sem uppfyllir tæknilegar kröfur (t.d. spennu, tíðni, gastegundir o.s.frv.) fyrir notkunarlandið og hentar viðkomandi umhverfisski-
lyrðum gilda ábyrgðarskilmálar notkunarlandsins ef við höfum þjónustunet fyrir viðskiptavini í því landi. Þú getur beðið um viðkomandi
skilmála hjá fulltrúa notkunarlandsins. Ef tækið er sent til landa utan ESB/EFTA, fellur ábyrgðin úr gildi.
9. Vinsamlegast athugið viðbótarþjónustutilboð okkar: Þjónustuver og viðurkenndir þjónustuaðilar okkar verða áfram þér til reiðu eftir
ábyrgðin er gengin úr gildi.
22
Loading ...
Loading ...
Loading ...