Owner’s Manual - Page 571

For 2017 KIA NIRO.

Loading ...
Loading ...
Loading ...
Appendix
810
Ábyrgðartrygging söluaðila
ökutækisins tekur ekki til skemmda
sem orsakast af rangri notkun
snjókeðja. Snjókeðjur skal aðeins
setja á framhjólbarðana.
Uppsetning á keðjum
Þegar keðjur eru settar á skal fylgja
leiðbeiningum framleiðanda og herða
keðjurnar eins mikið og unnt er.
Þegar keðjur hafa verið settar á skal
aka hægt. Ef hljóð heyrist sem bendir
til að keðjurnar séu í snertingu við
yfirbyggingu eða undirvagn er rétt að
nema staðar og herða keðjurnar. Ef
snerting virðist enn eiga sér stað skal
hægja aksturinn þar til hljóðið þagnar.
Takið keðjurnar niður um leið og
komið er á rudda og snjólausa vegi.
VARÚÐ
Gætið þess að snjókeðjurnar
séu af þeirri stærð og gerð sem
hæfir hjólbörðunum. Notkun
snjókeðja af rangri gerð getur
valdið skemmdum á
yfirbyggingu og fjöðrun
ökutækisins og kann að falla
utan ábyrgðartryggingar
söluaðila ökutækisins. Þá geta
festikrókar keðjanna skemmst
vegan núnings við íhluti
ökutækisins og snjókeðjurnar
losnað af hjólbarðanum. Gætið
þess að snjókeðjurnar séu með
SAE-vottun í S-flokki.
Eftir um það bil 0,5-1 km
akstur skal ævinlega skoða
keðjurnar aftur til að tryggja að
þær hafi verið settar upp á
réttan og öruggan hátt. Herðið
keðjurnar eða setjið þær aftur
á ef þær hafa losnað.
Ef hjólbarðar ökutækisins eru
18 tommur skal ekki nota
snjókeðjur. Þær geta valdið
skemmdum á ökutækinu
(hjólum, fjöðrun og
yfirbyggingu).
VIÐVÖRUN
- Uppsetning á keðjum
Þegar snjókeðjur eru settar upp
skal leggja ökutækinu á sléttum
fleti fjarri umferð. Kveikið á
viðvörunarljósum ökutækisins
og setjið þríhyrningslaga
viðvörunarskilti upp fyrir aftan
ökutækið, ef það er tiltækt. Hafið
ökutækið ævinlega í stöðuhemli
og drepið á vélinni áður en
snjókeðjur eru settar upp.
Loading ...
Loading ...
Loading ...