Owner’s Manual - Page 570

For 2017 KIA NIRO.

Loading ...
Loading ...
Loading ...
10 7
Appendix
Vetrarhjólbarðar
Ef vetrarhjólbarðar eru settir á
ökutækið þarf að gæta þess að nota
þverofna hjól- barða af sömu stærð og
ásþunga og upprunalegu
hjólbarðarnir. Setjið vetrarhjólbarða á
öll fjögur hjólin til að tryggja örugga
stýringu ökutækisins við öll
veðurskilyrði. Hafið í huga að á auðum
vegi kunna vetrarhjólbarðar að hafa
minna grip en hjólbarðarnir sem fylgdu
ökutækinu. Því þarf að aka af gætni,
jafnvel á auðum vegum. Ráðfærið
ykkur við söluaðila hjólbarðanna um
ráðlagðan hámarkshraða.
Áður en negldir hjólbarðar eru settir
upp er rétt að kynna sér reglugerðir
um notkun slíkra hjólbarða í
viðkomandi landi, fylki eða
sveitarfélagi.
Keðjur á hjólbarða
Hliðar þverofinna hjólbarða eru
þynnri en á öðrum hjólbörðum og
sumar gerðir snjókeðja geta því
valdið skemmdum á þeim. Því er
ráðlegt að nota vetrarhjólbarða
fremur en keðjur, ef þess er kostur.
Setjið aldrei keðjur á hjólbarða
ökutækja sem búin eru álfelgum þar
sem keðjurnar geta valdið
skemmdum á felgunum. Ef
óhjákvæmilegt reynist að nota keðjur
skal nota vírkeðjur sem eru innan við
12 mm á þykkt.
VIÐVÖRUN
- stærðir vetrarhjólbarða
Vetrarhjólbarðar ættu að vera af
sömu stærð og gerð og
hjólbarðarnir sem fylgdu
ökutækinu.
Misræmi á því getur dregið úr
öryggi og skert aksturseiginleika
ökutækisins.
ODE056062
Loading ...
Loading ...
Loading ...