User Manual - Page 713

For 2016 HYUNDAI GRAND SANTA FE.

Loading ...
Loading ...
Loading ...
Appendix
149
Uppsetning á keðjum
Þegar keðjur eru settar á skal fylgja leið-
beiningum framleiðanda og herða keðj-
urnar eins mikið og unnt er. Þegar keðjur
hafa verið settar á skal aka hægt. Ef hljóð
heyrist sem bendir til að keðjurnar séu í
snertingu við yfirbyggingu eða undirvagn
er rétt að nema staðar og herða keðjurn-
ar. Ef snerting virðist enn eiga sér stað
skal hægja aksturinn þar til hljóðið þagn-
ar. Takið keðjurnar niður um leið og
komið er á rudda og snjólausa vegi.
VIÐVÖRUN - Uppsetning á
keðjum
Þegar snjókeðjur eru settar upp skal
leggja ökutækinu á sléttum fleti fjarri
umferð. Kveikið á viðvör-
unarljósum ökutækisins og setjið
þríhyrningslaga viðvörunarskilti upp
fyrir aftan ökutækið, ef það er
tiltækt. Hafið ökutækið ævinlega í
stöðuhemli og drepið á vélinni áður
en snjókeðjur eru settar upp.
VIÐVÖRUN - Keðjur á
hjólbarða
Notkun keðja getur skert aksturs-
eiginleika ökutækisins.
Akið ekki hraðar en 30 km/klst.
eða samkvæmt ráðlögðum
hámarkshraða framleiðanda keðj-
anna, hvort sem reynist lægra.
Akið gætilega og sneiðið hjá
þúst- um, holum, kröppum
beygjum og öðrum hættum á
veginum, sem gætu valdið
hristingi ökutækisins.
Forðist krappar beygjur eða
læsta hemlun.
VARÚÐ
Séu snjókeðjur af rangri stærð
eða rangt upp settar geta þær
valdið skemmdum á hemlalögn,
fjöðrun, yfirbyggingu og hjólum
ökutækisins.
Hvenær sem hljóð bendir til þess
að keðjurnar sláist við ökutækið
skal stöðva akstur og herða keðj-
urnar.
Loading ...
Loading ...
Loading ...